Hæ 

Ég var að koma úr stórskemmtilegri bíóferð rétt í þessu, fór á The Dark Knight. Ég er búin að hlakka lengi til að sjá þessa mynd þó ég hafi aldrei þolað Batman. Ég meina ég ólst upp við teiknimyndirnar en ég hélt alltaf með vondu köllunum því vondu kallarnir í Batman eru miklu flottari en Batman sjálfur. Ég hef aldrei séð hvað fólk sér við Batman, hann er engan vegin töff, hann er bara ríkur plebbi sem hefur ekkert að gera við peningana sína, hann talar eins og zombie (til þess að þekkjast ekki) og hann á hallærislegasta sidekick sem heimurinn hefur kinnst. En jókerinn hins vegar er kúlaðari en allt sem er kúl, ég hef alltaf haldið með honum, þó að bróðir minn sæi ekki sólina fyrir Batman.
Ef ég mundi vakna einn góðan veðurdag með ofurkrafta þá hugsa ég að ég mundi nota þá til góðs, en ef mér mundi bjóðast að leika í ofurhetju mynd mundi ég vonast til að fá illmennið því það er einhver meiri sjarmur yfir þeim og jókerinn hefur alltaf verið uppáhalds illmennið mitt. Þegar ég var lítil hló ég í poka því jókerinn var alltaf með svona hlátur í poka, það virkaði samt aldrei hjá mér, ég skildi ekki afhverju 
Jókerinn hefur húmor fyrir lífin, kannski einum of mikinn sem er ekkert smá töff og hardcore en ógeðslega creepy enda er náungin bullandi geðveikur. Ég meina Batman er miklu hræddari við jókerinn en hann við Batman...enda hefur hann kannski meiri ástæðu til.
Ég sá ekki Batman begins, mig langar ekki til að sjá hana því það eru engir flottir vondir kallar í henni.
Eina ástæðan fyrir að ég horfði á Batman á RÚV um helgar var til að gá hvort einhver af vonduköllunum væri ekki að fara að drepa þennan pirrandi náunga, en þeir þurfa alltaf að tapa
Annars voru hin illmennin ekki jafn töff, 2face var einum of illur fyrir minn smekk, og mörgæsin var soldið hallærisleg (haha, gaur sem ólst upp hjá mörgæsum xD), en riddler var töff því jim carrey lék hann og ég er hrædd um að ég man ekki eftir fleirum, ég var nú aldrei neitt mjög djúpt sokkin í þetta.
En fyrst ég er að blogga þá ættla ég að bjóða bestu vinkonu minni, henni Ingu Maríu Árnadóttur innilega til hamingju með afmælið xD, hún er búin að lifa í sautján ár, einn klukkutíma og þrettán mínútur. Til hamingju með það 

En nú verð ég að fara að lúlla, er að fara uppá bústað í fyrramálið 